ÁG


Homeboy
júní 26, 2008, 3:43 am
Flokkað undir: Fagmennskan | Tags: , ,

Jæja þá er maður bara kominn með blogg maður… shiit nú verður alltaf þvílík pressa á manni að vera með eitthvað gott gúmmelaði hérna. Ég stenst pressu samt fáránlega vel. Og það er líka góður dagur til að byrja blogg í dag, mamma mín á afmæli, Freyr Árnason á afmæli og það er þjóðhátíðardagur Madagascar.. sem er snilld.

Reyndar hefur maður þvílíka reynslu af blogginu, er gamalt brýni í þessum efnum.. Hver man ekki eftir Playerz blogginu góða, erum legends í Hafnarfirði eftir það allt saman. Lendi t.d. oft í því að vera kallaður Rjómaslakur af starfsfólki í búðum og tannlækninum mínum og svona.. og það er bara það sem ég er, rjómaslakur..

Hérna má einmitt sjá mynd af okkur strákunum og held ég að það sé alveg á hreinu að þarna vorum við að toppa í lífinu. Fagmennskan í hávegum höfð.. klárlega.

Komum heim í nótt maður fjölskyldan.. Vorum í djammferð, alveg hauslaus allan tímann.. Pabbi og mamma og ég líka þurftum öll að taka yfirdrátt maður, þessir drykkir borga sig ekkert sjálfir ! Helvítis kreppan alveg að fara með mann.. Myndi segja að Viktor bróðir, 9 ára, hafi verið dólgur ferðarinnar, var með dólgslæti allan tímann strákurinn. Jesús kristur hvað ég er ekki að taka fyndna gaurinn, sorry bara fyrir þetta maður…

Það var samt geggjað að komast í rúmið mitt aftur. Hvenær hefur þetta rúm klikkað ? – Aldrei.. Allar nætur eru megasweet í þessu rúmi og mér hefur aldrei dreymt martröð í því einu sinni.. Hef aldrei sofið yfir mig eftir að ég fékk það.. Svo er það upp við vegg, þannig ég fer aldrei öfugu megin fram úr.. hahahaha. Það má segja að ég sé Bedshaped, eins og Keane sungu hér um árið.

Annars rólegur dagur í dag. Bara vinna og svo tók ég rúnt með ástmanni mínum, Emil Alfreð, um kvöldið. Þar ræddum við um týndar ástir undir tónum frá Jeff Buckley. Erum rosalega miklir trúnó gaurar ef ég pæli í því..

En jæja ætla að fara segja þetta gott maður. Held að það sé fínt að enda þetta bara á meistaranum sjálfum.

Bestu kveðjur,

- Pedro El Negro


1 ummæli hingað til
Skrá ummæli

ZZZÆLAR
FEITT DJAMM A MARMIS
YEAH!

Ummæli af Gauti




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>