Break the law, Breaking the law sungu Judas Priest fyrir ófáum misserum og þegar ég heyrði þetta lag var eins og ég hafi fundið köllun mína. Að brjóta lögin er LÍÍÍFIIÐ !! Ég meina… lögin eru til að brjóta þau, eins og maðurinn sagði.
Ég var í afmæli í gær hjá Fleckenstínu, Gilla og Jake þegar við ákváðum að skella okkur í bæinn. Ég fór strax að hringja í Lalla Johns og hina strákana úr crewinu mínu (köllum okkur Pópó er Loco) og við hóuðum okkur saman strákarnir. Ákváðum að pissa á einn vegg fyrst og gera svo það sem okkur líkar best, BRJÓTA LÖGIN !!!
Ég reyndar beilaði svo á gæs og fór og hitti Klöru Ingvars og var leið okkar haldið á Hverfisbarinn góða. Þar er ég beðinn um skilríki (hata að geta ekki farið í bæinn án þess að vera spurður shitt sko) og ég rétti þessum ágæta dyraverði skilríki annars manns. Og þá byrjar þetta rosalega:
Við hliðiná staðnum var stór lögreglubíll og dyravörðurinn gefur lögreglunni merki um að ég sé að brjóta lögin (það sést náttúrulega utan á mér að ég er atvinnukrimmi). Og út úr bílnum stökkva 3 löggur (eða svín eins og við köllum þær glæponarnir) og taka mig föstum tökum. Heyrðu þá var ég bara handtekinn fyrir skjalafals og var vinsamlegast beðinn um að fokka mér og koma með þeim niður á stöð. Ég var náttúrulega mega til í það þar sem að stöðin er my second home og söng ég lagið Sweet Home Alabama alla leiðina niður á stöð við litlar undirtektir hjá pópó.

Hvebbinn góði.
Fannst þau vera full alvarleg greyin. Þetta voru semsagt 1 kona og 2 gaurar. Annar þeirra var sköllóttur og dáldill nötter, t.d. þegar ég spurði hvert hann væri að keyra þá öskraði hann á þig ‘ÞAÐ VARÐAR ÞIG BARA EKKERT UM.’ – Eins og ég yrði mega hissa þegar við kæmum á staðinn.
Hinn gaurinn var alveg eins og einn gæji sem var foringinn minn í Vatnaskógi einu sinni. Ég var að pæla í að segja við hann Hósanna Hósanna en þá hefði ég held ég endanlega farið með það.
Konan var samt best af þeim. Hún var svona tvöfalt lessulegri en Þóra Helgadóttir landsliðsmarkvörður og var mega sveitt á efri vörinni. Hún hafði horft á myndina Catch Me If You Can árið 2003 og ákvað eftir það að nú væri komið nóg af skjalafalsi og hér eftir myndi hún gera það sem í hennar valdi stóð til þess að snúa þeirri hræðilegu þróun við sem hefur orðið í skjalafalsbransanum. Hún hætti einmitt í píparanámi í Iðnskólanum til þess að verða lögga og ég styð hana í þeirri ákvörðun að fullu, enda fagmaður fram í fingurgóma þessi ágæta kona.

Hér má sjá mynd af henni. Myndin er tekin við útskrift Lögregluskólans og er hún hér að flassa sínu besta lessupósi.
Þegar niður á stöð var komið var ég spurður hvort að ég væri með hníf eða byssu á mér.. ég sagði auðvitað nei.. Þá spurði gæjinn hvort ég væri með sprengju á mér… Uuu já auðvitað fer maður með sprengju í bæinn, ef maður skyldi nú alveg missa þolinmæðina í taxaröðinni, drepa liðið bara… Var með handsprengju undir pungnum sko…
Þar á eftir fór ég inn í yfirheyrslu herbergi þar sem að gaurinn sem leikur í The Shield yfirheyrði mig á meðan þau 3 stóðu yfir mér, eða Gísli, Eiríkur og Helgi eins og ég kýs að kalla þau… þeim fannst það ekkert fyndið. Eftir að þau hraunuðu yfir mig í góðar 20 mínútur var mér loksins leyft að fara. Og þá voru þau samt mjög stressuð að ég myndi ekki alveg örugglega redda mér heim. Helvítis 5-O alltaf með áhyggjur af manni maður ..
Þetta var svona mín reynslusaga. Vil ég þó þakka vel völdum einstaklingum fyrir þátt sinn í þessu bloggi:
Sigríður Pétursdóttir – Skrifta
Jóhann F. Alfreðsson – Bókaútgefandi
Lessuleg Lelludótir – Lögreglukona og fyrrum pípulagningakona.
Bestu kveðjur
- Grimmi Krimminn
3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
djöfull er ég sátt með ykkur guys að byrja blogga aftur, ég bloggaði einu sinni á hinum ýmsu síðum internetsins
En vá þetta er alveg fyndin færsla, rjómaslakur að dett’í gírinn aftur.
keep it upppp
Shorty the bandit queen kveður (semí ofmat)
Ummæli af Heiða Hrönn júní 29, 2008 @ 4:06 amHAHAHA… djöful er þetta skemmtilegt blogg hjá þér fagmaður..
kv. Guddi
Ummæli af Axel Guðmundsson..! júní 29, 2008 @ 3:14 pmBlessaður rjómaslakur, duran félagi þinn hérna, mannstu eftir mér, ég var með þér í Playerz, það var nú lífstíll, vildi bara kasta kveðju á þig, mjög gott blogg, sé að þú hefur engu gleymt.
Kveðja Simon Le Bon
Ummæli af Duran júní 30, 2008 @ 12:56 pm