ÁG


„Hverfis er lífið“
júlí 7, 2008, 4:01 am
Flokkað undir: Viðtal | Tags: , ,

„Hverfis er lífið !“ segir Nanna Lára Sigurjónsdóttir, djammdrottning með meiru. „Fólk veit bara ekki hverju það er að missa af áður en það fer þangað inn. Þetta er eins og himnaríki.“ segir hinn heittrúaða Nanna, sem hefur gert sér það að frægðarorði að hafa samið hið margrómaða Bjór Faðir Vor. Hún kveðst finna listamanninn í sér þegar hún sest með Bakkusi og skrifi hún einnig allar ritgerðir og skilaverkefni undir áhrifum hans, en hún gengur í Verzlunarskóla Íslands.

En hvernig gengur að sameina skóla og bæjarlífið ? – „Það gengur ekkert maður. Maður verður bara að velja í lífinu, bjölls eða að vera nölls. Ég vel bjölls.“ segir hin 18 ára Nanna og er greinilega með á nótunum í lífinu. Aðspurð hvernig staðan varð svona þá svarar hún að það hafi aðallega verið hópþrýstingur frá vinum og vandamönnum. „Stelpurnar voru endalaust að tala um djammið og ég var bara fótboltastelpa. En ég sé ekki eftir neinu í dag.“ Þær vinkonuhópurinn kalla sig einmitt Drunk and hot girls eftir laginu sem meistarinn Kanye West söng hér um árið og bera þær nafn með rentu. Oftar en ekki eru þær mættar í Hverfisröðina frægu um hálf 6 leytið, og finnst það ekkert snemma. „Ef maður ætlar eitthvað að gera þetta af viti verður maður að mæta snemma. You snooze you lose !“ segir Nanna Lára og voru þetta hennar lokaorð við undirritaðan.

Hér má sjá þær stöllur á Hverfisgötunni þegar klukkan er að detta í hálf 6. Mættar með teppi og tilbúnar í djammið.

Reynsluboltinn og gamla Hverfis-Brýnið Sindri Rafn Sindrason, annar Verzlunarskólanemi, tók einnig í sama streng. „Það eru nokkrir hlutir sem maður verður að hafa á hreinu ef maður ætlar að vera að þessu á annað borð. segir Reynsli Sindra. Þú verður að vera mættur snemma. Vera í góðum hóp og helst hafa gott nafn á krúinu. Ef þú ert með þessa hluti á hreinu ertu góður kandídat í Hverfis-Legend.“ En þess má til gamans geta að vinahópur Sindra kallar sig Le Hvebb Mafia.

Þegar ég spurði Sindra hverjar væru hans helstu fyrirmyndir í þessum efnum svaraði hann: „Það eru náttúrulega bara þessir helstu gæjar sem hafa meikað það á Hverfisbarnum. T.d. hvar væri Sigmar í Kastljósinu ef að Hverfis hefði ekki verið til staðar. Svo ég tali nú ekki um Hálfdán í Landsins Snjallasta eða Pacas hans Begga !” Ég er nú sammála honum að því leyti að það er mikilvægt að hafa góðar fyrirmyndir, og skemmir ekki að hafa þá fagmenn eins og fyrrnefnda stráka.

Hér er strákurinn hress á því í fermingarveislu bróður síns. Það voru gatanir í boði hússins.

Ætla að hafa þetta nóg af Hverfis-visku í bili. Afsakið þreytt blogg en svona er lífið. En þrátt fyrir erfiði í blogginu gengur lífið nokkuð sweet bara. Fórum að borða strákarnir á Ítalíu á föstudaginn og þaðan heim til Ben og áttum þar góða kvöldstund. Svo bara afmæli hjá Axeli um næstu helgi, stefnir allt í snilld. Jájá.

Lag dagsins er svo mikil snilld að það er bara djók. Það er lagið Guaranteed eftir Eddie Vedder en það er einmitt úr hinni stórgóðu mynd Into The Wild. Skelli því hér með.

Gullkveðjur

Jay Ay Why Ell I Bee


1 ummæli hingað til
Skrá ummæli

já vel valin orð um hverfisbarinn legendið þitt! við strákarnir í le hvebb mafia ætlum bara að þakka fyrir flotta grein um sillann okkar!

og ég ætla bara að senda baráttukveðjur til hennar Nönnu og segja henni að halda áfram að djamma þangað til hún getur ekki meir! því djammið er lífið og hún veit það!
en jæja later á liðið!
Gautiposse er out!

Comment af Arnar Gauti




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>