Þá er maður bara mættur aftur, eða Return Of The Jedi eins og myndin hét einmitt, stórgóð mynd og markaði stór spor í kvikmyndasögunni. Maður er svona smá jedi vil ég meina, hef þennan mátt sem að þeir eru að tala um… Ætla að halda áfram þeirri hefð að vera með lag færslunar eftir þvílíka ánægju með hin tvö. Lagið í dag verður snilldin So Far To Go með Common, þið njótið bara… spurning um að hlusta bara meðan þið lesið, væri frekar feitt…
En jæja núna verð ég að fá að kasta af mér smá byrgð… Er að vera brjálaður á einum hlut. Sá hlutur heitir Kassía El Salvador og er hin brasilísk-ættaða þrifkona sem kíkir á okkur fjölskylduna vikulega. Þó svo að hún sé ættuð þarna sunnanfrá er ekki þar með sagt að hún sé með einhverja sambatakta hérna við þrifstörfin, þvert á móti. Það virðist vera þannig að það sé ekki mikið tiltökumál í Brasilíu að ein manneskja róti í skúffum hjá annarri ókunnugri manneskju… Ég er bara svona gaur að ég vil hafa allt í orden hérna í herberginu mínu… á einum stað geymi ég einn hlut og á hinum staðnum geymi ég hinn hlutinn… svo kemur þessi gella vikulega og færir allt til þannig að ég þarf að taka til EFTIR HANA eftir hvert einasta skipti. Stundum er þetta bara eins og við séum í leiknum ‘Hvaða hlut tók ég ?’ en sá leikur gengur út á að einn fer út úr herberginu á meðan hinn tekur einn hlut og felur hann, svo kemur sá fyrri inn aftur og á að reyna finna hvaða hlutur það var. Eins og allir vita sem hafa spilað þennan leik er þetta uþb. glataðasti leikur í heimi og er það ekki mönnum bjóðandi að þurfa spila þetta vikulega… Vá hvað ég nenni þessu ekki..
Veit ekki alveg hvort ég nenni að nöldra mikið meira um þetta en ég vil samt nöldra aðeins um annað málefni. Ég hef gaman af góðri fréttamennsku og vill fá rétta mynd af því sem er að gerast. Þess vegna fannst mér mjög fyndið það sem að Dagblaðið Vísir ákvað að gera í gær í liðnum Dómstóll Götunnar. Spurt var um Finnst þér að Ísland eigi að taka upp Evruna ? og eins og oftast voru 4 einstaklingar gripnir af götunni og spurðir. Gaman að sjá svo að DV ákvað að spyrja 11 ára dreng að þessu… Ókei, hverjum er ekki drullusama hvað einhverjum 11 ára gæja finnst um hvort við ættum að taka upp evruna eða ekki ? kv. Harði Jóns

,,Nei, af hverju ættum við að taka upp evruna ?” segir hinn full-upplýsti Karl Friðrik Kristjánsson, 11 ára grunnskólanemi eftir langa íhugsun.
Ætla segja þetta gott af nöldri í bili… dagur 28 í mánuðinum hjá mér, stelpur þið þekkið þetta… vá maður.
kv. Gellan sem nöldrar í þættinum Svalbarði
5 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Þú mátt ekki horfa framhjá því að þetta er einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Evrópumálum. Hann hefur verið álitsgjafi í Kastljósi, Viðskiptablaðinu, Íslandi í Dag og Markaðnum.
Comment af Brynjar Guðnason júlí 18, 2008 @ 1:48 pmsko ég þekki þetta cleaninglady dæmi.
mín var reyndar Agatha frá austurevrópu, en hún átti það einmitt til að taka til í herberginu minu eins og henni hentaði. ég er líka ekki frá þvíað hún tók nokkrar nærur frá mér.
en trikið er að gera herbergið ÞAÐ skítugt að þær neiti að taka til þar. það gerði ég nefninlega, og agatha frá austurevrópu harðneitaði að koma inní herbergið mitt.
Comment af milla júlí 18, 2008 @ 2:22 pmproblem solved.
=)
Þetta hefur bara verið sumarstarfsmaður hjá Dv sem hefur gert þetta á síðustu stundu haha, en að velja 11 ára dreng er mjög spes. Ég er mjög ánægður með þessar færslur hjá þér. keep doing it brother
Comment af Brynjar júlí 19, 2008 @ 11:47 amgaman að lesa bloggið þitt Árni Grétar,
ég fór sömu leið og millla með skúringakonurnar haha, mæli með því =)
Comment af Áslaug Arna júlí 20, 2008 @ 3:33 pmÞvílikur penni Árni
Sjaldan lesið svona grand blogg ! En annars góð færsla , fékk mig til að hlægja
Comment af Jóna júlí 21, 2008 @ 12:06 am