Var að koma af FH – HK í Landsbankadeildinni og þar fóru mínir menn með sigur 4-0, sem var ótrúlega gott maður… Ég æfði einmitt fótbolta einu sinni, hætti því ég meiddist… Ótrúleg synd sem það var. Menn töluðu um næsta Eric Cantona á þeim tíma, þvílíkt efni þar á ferð. Við vorum líka með gullaldarlið hérna í 6. og 5. flokki. Vorum ósigrandi og var valinn maður í hverri stöðu. Liðið var eftirfarandi:
Siggi Mæjó
Aron Pálmars - Óli Guðmunds (c)
Össi Magg – Háki Hall – Björn Daníel
Árni Grétar
Eins og sjá má var þetta lið í einu orði tuddalegt. Reyndar má til gamans geta að þjóðverjinn Brynjar Ben var ekki fluttur heim á þessum tíma og var það kannski aðalástæða þess að ég var í þessu liði. Fyrir utan það að ég og Aron og Óli vorum mjög sterkir í hornum saman.. allir yfir 150cm á hæð en meðalhæð drengja í 5. flokki er um 140cm samkvæmt knattspyrnualfræðinnibókinni Gulli Vall knows it all ! Ætla samt bara að slá þessu upp í létt kæruleysi og taka úttekt á hvar þessir menn eru í dag.
Siggi Mæjó: Eða Sigurður Örn var mesta markmannsefni Íslands á sínum tíma og fékk einmitt verðlaun fyrir besta markvörð A-Liða á Esso-mótinu. Þegar komið var upp í 3. flokk fór Siggi svo að spila úti og var hann í miðverðinum hjá okkur sumarið 2006. Siggi fór svo alfarið í handboltann en hann er seinast þegar ég vissi á milli stanganna í unglingalandsliði Íslands.. sem er bara allt gott og blessað. Hann er líka í Flensborg og vann eða vinnur á Papinos Pizza, var allavega drullugóður vinnufélagi hér um árið.
Aron Pálmars: Gat reyndar aldrei neitt í fótbolta eða íþróttum yfirhöfuð og ég veit ekkert hvar þessi gæji er í dag…
Óli Guðmunds: Eða Kapteinn Krókur eins og hann var nú aldrei kallaður tók eitt fagmannlegasta move seinni ára í lífinu, kaldhæðnislaust. Hann var alltaf geðveikur og var lykilmaður hjá okkur í 3ja flokk. Svo fór hann í reynslu til Everton og eftir að hann kom heim þaðan ákvað hann að leggja handboltann fyrir sig. Hitti hann niður í Krika um daginn og þá var hann bara einn að æfa fyrir EM unglingalandsliða í handbolta… Metnaðarfyllsti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst fyrir utan Hólmar Freyr Sigfússon.
Össi Magg: Örn Rúnar er nú með mér í Versló og er bara að gera fína hluti held ég. Var við hliðiná honum á ljósum um daginn og var hann með bílinn stútfullan af chicks.. hvað annað ? Jafnan kallaður Bleiki Pardusinn eða Chocko el Loco vegna klæðaburðar en það er bara allt í lagi með það. Hann er ennþá í boltanum og er in it to win it eins og í stórmyndinni Bring it on…
Háki Hall: Er ennþá með boltann á tánum og lífið í lúkunum. Hann var einmitt í Séð og Heyrt um daginn með sinni heittelskuðu Söru Björk Gunnarsdóttur og voru þau afskaplega buffuð saman eitthvað…En svona grínlaust er hann fáránlega góður í fótbolta en mjög lélegur í póker, allavegana vinn ég hann þar. Einnig er hann víst besti sætisfélagi í lífinu samkvæmt Axeli Guðmundssyni, sessunautsfræðings með meiru. En góður sætisfélagi þarf : A) Að geta þagað þegar maður vill læra. B) Að geta tekið rugl þegar maður vill taka rugl. C) Geta talað um allan andskotann. Þessi 3 meginskilyrði uppfyllir Háki með glæsibrag og innilega til hamingju með það H-Akon.
Björn Daníel: Er ennþá í boltanum og var einmitt áðan að spila sinn fyrsta Landsbankadeildarleik og lagði þar upp mark eftir 2 mínútur.. ruddalegt. Oft kenndur við norðmanninn Rohnny Johnsen eða Usher og það liggja ákveðnar ástæður fyrir því… Hélt uppi síðunni www.blog.central.is/a-town á sínum tíma og hvet ég ykkur öll til að kíkja þangað.
–
En já… spurning hvort að ég sé sá eini af þessum gaurum sem náði ekki í landsliðið í neinu. Held það bara. Maður er nú meiri helvítis auminginn… Fékk það staðfest áðan. Fór að kaupa mér að borða á Nonnabita og var fremstur í 3ja manna röð. Allt í einu dregur afgreiðslu maðurinn myndavél upp og smellir af okkur í röðinni og segir svo ‘Þið eruð allir fastakúnnar, þetta fer á Facebookið’. Vissi ekki alveg hvernig átti að túlka þetta hjá honum en ég held að þetta hafi verið eitthvað í þessa átt ‘Djöfull ertu að verða feitur helvítið þitt’ eins og mín ástkæra móðir er byrjuð að segja við mig mikið.
Nóg komið af rugli í bili.. er alveg rosalega þreyttur og mun þessi færsla einkennast af því.. Lag dagsins er slagarinn All Good með bandinu De La Soul… var rosalega gott í dentid.
kv. Fat Joe
2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Djöfulsins fagmennskublogg ánægður með þig. Ég var líka svona einmitt að pæla í hvar Aron er eiginlega staddur í lífinu núna, var alveg búinn að skíta upp á axlir síðast þegar ég frétti.
Set eitt fyrir þig á móti skaganum ef maður fær minútur.
Comment af Rohnny Johnsen júlí 25, 2008 @ 7:44 pmblessaður árni ruud finnbogasson…hrikalega var þetta skemmtileg lesning.. og er algjör synd að þú skulir hafa hætt í boltanum því þú varst með þetta markanef eins og menn vilja kalla það…vil líka bara segja að þetta er mjög nett síða hérna hjá þér..
Comment af háki hall júlí 25, 2008 @ 7:49 pmen við heyrumst
kv. Háki