ÁG


Salmonella
júlí 27, 2008, 3:21 pm
Flokkað undir: Fagmennskan, Hetjusögur | Tags: , ,

Já kæru lesendur núna er maður bara staddur í baðinu heima. Með Kenny G á fóninum og Rachel Ray er að nudda mig á milli þess sem hún er að gefa mér ráð með heimilisstörfin. Lífið verður varla meira sweet ég veit, en maður verður samt að reyna að toppa sjálfan sig. Rachel er alveg sammála.

Annars byrjar bara seinasta vikan í vinnunni á morgun maður. Sumarið að verða búið, ég veit bara ekkert hvernig á að haga mér. Það er meira að segja orðið dimmt á nóttunni. Ég reyndar hef ekki séð það sjáfur en einn gaur sagði mér það.. ég vaki aldrei nefnilega.

En ef ég að tala um myrkur á annað borð þá fórum við strákarnir á The Dark Knight í gær. Keyptum miðana haustið ‘97 og vorum orðnir semi spenntir. Ég taldi niður klukkutímana í gær og svo bara byrjaði þetta. Þessi mynd er bara ólýsanleg… allt sem ég vildi sjá og meira til. Ég var viðbúin að sjá smá ofmat því að það er ekki einn maður búinn að segja slæman hlut um þessa mynd við mig og ég hélt líka að Heath Ledger yrði góður og væri þá bara talinn frábær því að hann er dáinn. En án djóks að sjá þennan gæja var svo mikið rugl… mér fannst næstum því eins og ég gæti fundið lykt af honum, hann var frábær. Og reyndar var ekki veikur hlekkur í leikaraliðinu en mér fannst Aaron Eckhart bestur. Fáránlega vanmetin frammistaða og tilnefning til Óskars kæmi mér ekkert á óvart. En ég hef fílað þennan gæja alveg síðan ég sá Thank you for smoking hér um árið. En kvikmyndanördinn ætlar að segja þetta gott í bili…

Við feðgarnir fórum svo í veiði á föstudaginn. Fékk þar minn fyrsta lax eða maríulaxinn eins og hann er jafnan kallaður, og svo komu tveir í kjölfarið svo að ég er mjög sáttur. Fyrsti laxinn var reyndar ekki upp á marga fiska (fattiði þennan ?) og var ekki eins stór og kannski ég hefði viljað… en ef að klámbransinn hefur kennt mér eitthvað í gegnum tíðina þá er það að stærðin skiptir ekki máli svo að ég er mjög sáttur.. Við sungum svo Ó María og fórum með nokkrar Maríubænir í tilefni maríulaxsins. Þetta var rosalega mikið marmelaði allt saman…

Í tilefni af því ætla ég að henda hér inn laginu Maria úr kvikmyndinni West Side Story.

Og þar lá laxinn grafinn …

kveðjur og keðjur

- Bruce Wayne


3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Þessi mynd er bara gull, lang besta mynd sem ég hef séð Bruce Wayne a.k.a Björgólfur Thor er minn maður, gerist varla nettari. En ég er sammála þér að hver einasti leikari er geðveikur í þessari mynd. En varðandi maríulaxinn til hamingju aftur:)

Ummæli af Brynjar

Það er bara einn ben án djoks pældu ef við ættum 2 ?

Ummæli af Axel..!

Tveim númerum of fyndið þegar Jókerinn
lætur blýantinn hverfa í byrjun
myndarinnar !

En fagmennsku bloggsíða hér á ferð,
algerlega komin inn í Favorites.

Ummæli af Kári




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>