ÁG


Frelsarinn
júlí 31, 2008, 5:08 am
Flokkað undir: Fagmennskan | Tags: , ,

Jújú nú er maður klæddur og kominn á ról eins og sagði í kvæðinu góða og sestur við skrif en fæ ekki frið eins og sagði í öðru kvæði sem er kannski ekki jafn gott.. Ég fíla ljóð og hef samið þau ófá í gegnum tíðina. Hérna er eitt gott eftir mig.

Hér er ró, hér er friður.
Hér er gott að setjast niður.
Losa sig við þunga þanka
þar til einhver fer að banka.
Þá er mál og mannasiður
að standa upp og sturta niður.

Þetta samdi ég eftir gott tafl við páfann þarna um haustið ‘97. Má þarna gletta í póstmóderníska bragarhætti en ég skeyti lítið um fastar skorður og er frjáls í hug og verki. Ain’t no following footsteps, just making my own eins og Eminem sagði á sínum tíma… ótrúlegt hvað Eminem dælir út úr sér viskunni… Mæli með slögurum eins og Niggaz wanna fuck your mother og Bitch I hate you með honum…

En svona úr einu í annað þá vorum við strákarnir að horfa á myndina Eyes Wide Shut í kvöld og féll hún misvel í kramið. Persónulega fannst mér hún snilld, en Seli Gumm gaf henni ekki nema 5/10 og Emil 6/10 sem þýðir að alls fékk hún 19 af 30 mögulegum (reikna með áttunni minni) sem er ekki nema 6.33 í lokaeinkunn og kæmist hún því ekki í Háskólann sem hún valdi fyrst auk þess sem að hún hefði einungis útskrifast með láði… Hvernig fannst ykkur þetta djók samt ? Að láta eins og myndin væri nemandi í framhaldsskóla ! Samdi þennan einmitt sjálfur… spurning um að henda honum bara í ljóðabókina líka.

En eftir þessa misgóðu mynd föttuðum við að Hermann Óli Davíðsson, rappstjarna með meiru, væri einn heima og þá er auðvitað stutt í ruglið… Fórum fyrst og tókum rafmagnið af heima hjá honum og bönkuðum svo á alla glugga… um að gera að hegða sér eins og fullorðinn svona einu sinni… En til að gera langa sögu stutta þá varð Hemmi bara alls ekkert eins hræddur og við mátti búast og þá kom málshátturinn ‘Sá hlær best sem síðast hlær’ helst upp í hugann.

Svo er Brilli bara farinn til Tenerife.. maður veit bara ekkert hvernig á að haga sér hérna heima…

En annars eru hetjur dagsins eftirfarandi:

Hemmi fyrir að vera hugrakkur áðan og toppgæji yfirhöfuð.

Brilli fyrir að vera að fara holu í höggi í lífinu.

Einar Áskell fyrir að hafa alltaf verið til staðar í þádaga.

Annars ætla ég að kveðja héðan úr heiðardalnum.

Sólskinsbros…

- Árni


2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Viva Einar Áskell!

Ummæli af ofurkvenndid

rólegur var hemmi ekkert hræddur, mér fannst ópin í honum þegar ég lamdi golfkylfunni í gluggatjöldin hjá honum ekkert karlmannleg

Ummæli af Emil




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>