ÁG


Hold the phone
ágúst 5, 2008, 2:22 am
Flokkað undir: Fagmennskan, Hetjusögur | Tags: , , ,

Þetta lag samdi ég um mína ástkæru móður sumarið fyrir 7. bekk. Reyndar hafði ég kannski ekki fattað þá hversu mikil fagmaður þessi kona er enda hefur verið mikill stígandi í sambandi okkar svona seinni ár. Fékk reyndar rapparann Nas til þess að flytja textann fyrir mig enda var röddin á 13 ára strák kannski ekki húsum hæf á þessum tíma og tónaði alls ekki við lagið. Góðverkaferilskrá Önnu Maríu mömmu er fáránlega löng og ég væri lengi að rita niður það allt en ég er með BEST OF SUPERMOM bók í skrifum og mun hún líklegast fljóta með jólabókaflóðinu núna um næstu jól. Arnaldur Indriðason ætlar einmitt að gefa út bók um svipað leyti og verður gaman að sjá hvor bókanna verði betur seld en gárungar telja BOS líklega til alls… Axel Guðmundsson verður jafnvel með gestakafla í bókinni en hann kallar mömmu jafnan Mömmu 2 enda hugsar hún oft fyrir okkur strákana… Vonandi höfðuð þið gaman af þessum orðum mínum um mömmu en ég varð bara að setja þetta inn því að þegar hún keypti ballerina kex fyrir mig áðan þá lá bara við að ég færi á hnén og tilbæði hana…

Veit eiginlega ekki hvað ég get skrifað meira svo að ég ætla bara að detta í smá kæruleysi.. Var að komast að því áðan að ég er með mjög leiðinlega fóbíu. Hún lýsir sér þannig að ef ég sé kannski að labba að einhverri hurð og með fullt af fólki fyrir aftan mig þá er ég mjög stressaður að opna hana.. sérstaklega þegar það er svona hurð eins og í bíó þar sem maður þarf að ýta einhverju haldfangi niður og ég veit ekki hvað og hvað… maður þarf bara BS gráðu í verkfræði til þess að geta opnað hana… en allavegana þá verð ég oft stressaður að ég kunni ekki að opna hurðina eða geti það ekki og allir fyrir aftan mig svona að drífa sig úr bíó og bara ‘hvað er þessi gaur ekki að djóka þarna fremst ?‘ og ég eitthvað að líta við með EHH svipinn … Nennir einhver að kommenta ef að hann veit hvað ég meinar, annars er þetta sjúklega vandræðalegt…

Annars vorum við sonur Gumma að keyra um áðan og hann var að segja mér einhverja sögu um einhvern gaur sem var að gera eitthvað og honum var greinilega mjög heitt í hamsi að segja mér þetta.. og ég var orðinn svona temmilega spenntur og spyr svona ‘.. Og hvað sagði hann ??’ og þá kom Guðmundsson með setninguna ‘Hold the phone félagi !’.. Spurning frá hvaða öld hann gróf þessa setningu upp en þetta er svona sem maður segir bara í bíómyndunum og héðan af verður þessi ágæti vinur minn kallaður Joe Hollywood… Bíð spenntur eftir setningum frá honum eins og ‘Hey Árni let’s cut through the chase’ og fleiri góðum… Þess má geta að Axel er röddin sem kynnir dagskráliðina á Vörutorgi svo að hann hefur næga reynslu af þessum bransa… ég hef náttúrulega varla tærnar þar sem hann hefur hælana þrátt fyrir að ég hafi leikið í Er ég banani ? auglýsingunni hér í dentid…

En ætla að segja þetta nóg í bili hér úr heiðardalnum…

Bless með stæl – varúlfsvæl !

kv. Bert Ljung


3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Hold the phone árni hold the phone hahahhaha!

Ummæli af Axel..!

I feel you árni, i feel you.
veit hvað þú meinar með þetta hurðathing, svo mikil ábyrgð sem liggur á þér, og bara þér. og hvað gerist ef að þu getur ekki ýtt henni í opn? hvað gerist ef að þú klikkar og bara rennur feitt á stál handfanginu ? nei þú veist það nefnilega ekki, og vilt ekki komast að því.

Ummæli af Aníta

Mamma þín er legen, bíddu …. dary!

Ummæli af Hjalti




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>