Eins og Jay-Z eða Jayzee sagði hér um árið þá hef ég fengið mojo’ið aftur og er það frábært.. Ótrúlegt hvað Jay-Z er mikill spaði maður.. Fór frá því að vera fátæklingur og krakksali og í það að vera besti rappari í heimi og forstjóri Def Jam og eigandi New Jersey Nets… Vil meina að Emil Alfreð vinur minn sé svona í svipuðum pakka. Hann ólst upp á Holtinu, og eins og allir vita er ekki á menn leggjandi að alast upp í því helvíti, og Emil þurfti að vinna allskonar skítavinnu á sínum uppvaxtarárum. T.d. var hann í sumarvinnu upp á Ásvöllum einu sinni að rífa af miðum á heimaleikjum Hauka… Eins og allir vita mætir ekki ein einasta hræða á Haukaleiki þannig að Emil stóð þarna í heilt sumar greyið og beið og beið, eins og litla stúlkan með eldspýturnar…
Annars er þetta búin að vera frábær vika maður.. Fór á Mamma mia! um daginn og þá var svona sýning þar sem maður gat sungið með.. Var ekki alveg að fíla það en Nanna vildi endilega fara svo að við skelltum okkur saman. Hún kunni öll lögin og hún er einmitt með THE WINNER TAKES IT ALL tattú niður endilangt bakið. Hún er að suða í mér um að fá mér S.O.S. yfir bringuna en ég er svona tvístígandi, get ekki sagt að ég sé mikill ABBA maður. Sumar konurnar létu eins og þær væru bara að frelsast þarna í salnum og má sá á meðfylgjandi mynd að það var heitt í kolunum þetta kvöld.

Hér má sjá mynd af Nönnu en hún er fyrir miðju með friðarmerki á lofti.
Svo fór ég á Atmosphere á laugardagskvöldið með Emil og Hafþóri og var það í einu orði ruddatuddasuddalegt. Með betri tónleikum sem ég hef farið á en menn voru ekki sammála mér með dóma eins og svo oft áður. Hafþór fílaði þetta minnst og Emmi bara semi en svo var ég í skýjunum.. Ég er ennþá með gæsahúð eftir að þeir tóku slagarann Little Man.
Svo er úrvalslið fagmanna að fara í bústað um helgina (nema að þetta verði eitt allsherjarbeil eins og stundum hefur gerst). Við strákarnir köllum okkur DREAM TEAM eins og bandaríska körfuboltalandsliðið var kallað á ÓL ‘92. En svona var liðið skipað:
Árni Grétar – Michael Jordan
Hermann Óli – Charles Barkley
Axel Guð - Patrick Ewing
Emil Alfreð – Scottie Pippen
Hafþór Þrash – Karl Malone
Hólmar Freyr – Larry Bird
Jökull Jake – Magic Johnson
Brynjar Ben – Clyde Drexler
Sindri Sig – Chuck Daly (þjálfarinn)
Vildi samt bara láta ykkur vita að ég er ennþá lifandi með sól í hjarta og bros í minni.
Góðar stundir,
- Jordan

2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Gott blogg árni minn, datt það í hug að þú fýlaðir þessa tónleika
ég er samt ekki sammála þér að ég væri Clyde Drexler, ég er meira svona Scottie Pippen:)
Ummæli af Brynjar ágúst 12, 2008 @ 7:41 pmBíddu bíddu, ég er ekki frá því að mamma Gauta sé þarna vinstra megin í rauðu.
Ummæli af Hjalti ágúst 13, 2008 @ 7:17 pmEr það ekki Árni?