ÁG


Styrkur og traust
ágúst 16, 2008, 4:50 am
Flokkað undir: Drama, Fagmennskan, Hetjusögur | Tags: , ,

Mér finnst mjög mikilvægt að byrja gott blogg á góðri fyrirsögn… Nú var maður í fjölmiðlahópnum ár eftir ár og stjórnaði honum eitt árið og ætti nú því að vita eitt og annað um fyrirsagnir. Vissi ekki alveg hvað ég átti að setja þarna efst en var þó með það á hreinu að það yrði að vera eitthvað sterkt og traust, svo að þessi fyrisögn lá fremur vel fyrir höggi..

Annars var hrikalega gaman á FH – Aston Villa í gær.. Mér fannst Bjössi alveg vera að éta Barry og gárungar telja að Liverpool hafi hætt við hugsanlegt hærra tilboð í Barry og boðið Fimleikafélaginu háa upphæð fyrir Björn eða Bjösher eins og hann er jafnan kallaður af þeim sem þekkja hann.. En leikurinn fór 4-1 fyrir Bretunum en ég var hinsvegar mjög sáttur bara. FH miklu meira með boltann og áttu nokkur góð færi þarna.

Svo er bara skólinn í næstu viku maður.. Skólasetning á þriðjudaginn og svo bara byrjar þetta.. Ég er víst að fara í einhvern allsvaðalegasta stærðfræðiáfanga sem er kenndur á framhaldsskólastigi og lítill fugl hvíslaði því að mér að jafnvel Brynjar ‘Vasareiknir’ Ben myndi svitna við þetta.. Veit ekki með það en hann svitnaði allavegana lítið í stærðfræðinni í Setbergsskóla á sínum tíma.. Reyndar var hann í annarri stofu en ég því að hann var í hraðferðinni… ég var í flugferðinni.. Ótrúlegt maður, smá útúrdúr hérna en ég verð bara að segja þetta… Brilli kom frá Þýskalandi í 8. bekk og hafði þá aldrei í lífinu lært dönsku en svo fór hann bara í hraðferð í strax. Hann var alltaf kallaður Kongen af dönskukennaranum og var trolleraður eftir hvern einasta tíma. Voru margir afbrýgðissamir út í den danske Brille á þessum tíma en hann skeytti lítið um það og var bara ligeglad með þetta allt saman… En já skólinn er á næsta leyti og það hefur fækkað um heilan helling í bekknum mínum og ég veit ekki alveg hvernig ég er að fíla það..

Smá saga hérna í restina.. Núna eftir prófin í maí og áður en vinnan fór af stað vorum við Axel að taka einn af okkar margfrægu næturrúntum. Við fórum Heiðmarkarleiðina góðu á leiðinni heim en fyrir þá sem þekkja hana ekki þá er þetta utanbæjarvegur sem að við fórum oft frá Garðabæ og inn í Setberg þar sem við búum… En þessi vegur er s.s. ekki upplýstur og persónulega finnst mér mjög kósý að keyra þarna þegar það er dimmt, nema hvað að þessa ákveðnu nótt var þetta sko ekki neitt kósý… Klukkan var að ganga 3 á þriðjudagsnóttu og þar sem við vorum í fríi strákarnir þá vorum við bara rólegir á trúnó.. Og við beygjum útaf hraðbrautinni í Garðabænum eins og svo oft áður og förum og keyrum þennan dimma veg. Þegar við erum komnir hálfa leið (erum einhversstaðar á milli Garðabæjar og Setbergsins) þá sjáum við allt í einu stelpu labba í sömu átt og við vinstra megin við veginn. Hjartað á okkur báðum fór alveg niður í buxur maður og ég var svo hræddur að ég læsti hurðunum á bílnum því að ég hélt að kannski væri einhver að fela sig hinum megin og myndi þá stökkva á bílinn ef að við myndum stoppa fyrir henni (veit ekki alveg hvaðan ég fékk þá hugmynd, en mig grunar úr bíómyndinni Two guys get killed on a dark street frá árinu 1998).. En svo keyrum við framhjá henni og hún var klædd í grænar buxur og í svona úlpu með loðkraga.. En ég s.s. keyri frekar hægt framhjá henni því ég vildi sjá hvað einhver gella á mínum aldri væri að labba ein út í rassgati um miðja nótt.. en allt kemur fyrir ekki og ég sá ekki framan í hana í myrkrinu og ekki Axel heldur.. Svo lítur Axel í hliðarspegilinn mín megin (ég er að keyra) þegar við erum að komast framhjá henni og þá sér hann að hún er brosandi svona hræðilegu brosi.. vitið alveg hvað ég meina… Og Axel bara SHITT og við keyrum veginn á enda eins og fætur toga… Svo þegar við erum komnir í Setbergið þá ákveðum við að snúa við og tjekka hver í andskotanum þetta var eiginlega… Svo að við snúum við og keyrum til baka, og án djóks ég hélt næstum fyrir augun ég var svo hræddur… En getiði hvað, hún var bara horfin gellan ! Við keyrðum veginn alveg á enda og sáum hana hvergi, þá snérum við við og keyrðum hann aftur endilangan og hún var bara farin… Ok sko, það er ekki séns að hún hafi getað labbað alla þessa leið (maður er svona 2 tíma að labba þennan veg) á 5 mínútum… Svona er lífið ótrúlegt og við félagarnir höfum ekki ennþá komist að því hver þetta var en við eigum pantaðan tíma hjá Sálarrannsóknarfélaginu núna 20. ágúst… Hvernig fannst ykkur þessi saga samt svona á skalanum 1-10 ?

Hér má sjá skýringarmynd af þessu. © Axel Guðmundsson

Annars ætla ég nú að halda uppi hefðinni sem ég hef komið á hér og skella nokkrum slögurum hér inn.. Veit reyndar ekki hvort að neinn hlusti á þetta en þetta gefur mér gildi í lífinu og það er það sem málið snýst um. Maður lifir bara einu sinni… djók. Ætla samt að koma með smá drama lög því að ég hef verið í þannig fíling í allan dag og er búin að vera með þessi lög á heilanum.

Byrjum á þessum Klassíker hérna með Sting. Þetta er svona lag sem að ma+pa vönguðu fyrst við.

Þetta er svona já.. þunglyndislag en samt gott svona um mitt sumar líka.

Þetta er klikkað lag. Lagið úr Macbook Air auglýsingunum og er ég búinn að vera að glamra þetta lag á píanóið í allan dag..

Enda þetta á einni góðri af mér og Brynjari á gullaldarárum okkar úr Setbergsskóla.. Þið verðið bara að giska hver er hver á þessari mynd…

Þangað til næst,

- ÁGF


3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Haha þú ert fyndinn Árni :D Sagan fær 9 frá mér haha og til hamingju með þessa skýringarmynd :D Líka hrósa þér fyrir að setja mynd af Brynjari á wife beater, þið voruð nettir :)

Ummæli af Jóna Kristín

það er alveg ótrúlega gaman að lesa bloggin þín drengur :D en ég er með eina Heiðmerkursögu, segi þér hana við tækifæri ;)

Ummæli af Erna Björk

Jájá, og þú spurðir mig hvort ég hefði nokkuð verið á röltinu um nóttina í heiðmörk í maí, er ég svona hryllilega scary ? nei ég bara velti því fyrir mér, gaman að þessu.. frábært alveg =)

Ummæli af Aníta




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>