„Ég veit eiginlega ekki í hvorn fótinn ég á að stíga en veit þó að þetta er hrikalega svekkjandi !“ segir Ebenezer Þórarinn Einarsson, oft kenndur við Ephense.
„Satt að segja hélt ég fyrst að þetta væri bara djók. Ég er Íslendingur þó að augun beri það ekki með sér“ bætir hann við. Ebenezer eða Ebbi eins og hann er jafnan kallaður lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að vera meinað að koma til Bretlandseyja fram að árinu 2050 á þeim forsendum að hann sé með falsað vegabréf.
Ertu til í að segja okkur aðeins betur frá þessu máli öllu saman Ebenezer ?
„Já að sjálfsögðu. Við strákarnir erum að fara saman til London þann 15. september og er gríðarleg stemning í hópnum. Strákarnir fóru einmitt í fyrra og er þetta því orðin skemmtileg hefð. Við erum komnir með bloggsíðu og allt saman. Svo var ég að láta endurnýja vegabréfið mitt í vikunni og bretarnir neita að stimpla það löglegt og hleypa mér þar með ekki inn í landið. Þeir segja mig vera asíubúa í sauðargæru íslendings og að ég sé þannig með falsað vegabréf !“

Hluti ferðahópsins í fyrra. Avram Grant var fullur alla ferðina og neitaði að fara úr þessari Chelsea peysu.
En nú ert þú kínverskur, ekki satt ?
„Nei það er bara misskilningur. Ég er íslendingur og meira að segja mjög stoltur íslendingur. Þeir hafa bara verið að horfa á kvikmyndina The Terminal og halda að þeir lendi í einhverju þannig með mig, en það gerist aldrei sko, ég myndi aldrei raka mig á flugvelli !“ segir Ebbi og bætir við „Þetta er gríðarlega svekkjandi í ljósi þess að við strákarnir fengum okkur allir London Calling hringitón hjá Nova til þess að gíra upp stemninguna fyrir ferðina. Ég borgaði 98 krónur fyrir þennan hringitón en nú virðist sem að þessir aurar séu farnir til einskis. Ég sendi Nova mail á sunnudaginn en þeir segjast ekkert getað gert. Þetta er hrikalega svekkjandi !“

Hér er Ebbi á hægri hönd pósandi að asískum sið.
Það lítur því miður allt út fyrir það að asísk-íslendingurinn Ebe með Crebe verði á klakanum vikuna 15-22. september. Ebbi segist vera mjög fúll og að þetta séu eingöngu fordómar og að þessar ásakanir bretanna séu ekki á rökum reistar og verður undirritaður að vera hjartanlega sammála honum.
13 dagar í London.
kv. Bogi Ágústsson
2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Nú er ég virkilega orðin solgin í nýtt blogg.
Ummæli af Hjalti Unnar október 6, 2008 @ 1:12 pmWhy not?
jæja Árni, ég er búin að bíða í mánuð eftir nýju bloggi frá þér
er eitthvað væntanlegt ?
Ummæli af Erna Björk október 8, 2008 @ 11:41 pm