„Ég veit eiginlega ekki í hvorn fótinn ég á að stíga en veit þó að þetta er hrikalega svekkjandi !“ segir Ebenezer Þórarinn Einarsson, oft kenndur við Ephense.
„Satt að segja hélt ég fyrst að þetta væri bara djók. Ég er Íslendingur þó að augun beri það ekki með sér“ bætir hann við. Ebenezer eða Ebbi eins og hann er jafnan kallaður lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að vera meinað að koma til Bretlandseyja fram að árinu 2050 á þeim forsendum að hann sé með falsað vegabréf.
Ertu til í að segja okkur aðeins betur frá þessu máli öllu saman Ebenezer ?
„Já að sjálfsögðu. Við strákarnir erum að fara saman til London þann 15. september og er gríðarleg stemning í hópnum. Strákarnir fóru einmitt í fyrra og er þetta því orðin skemmtileg hefð. Við erum komnir með bloggsíðu og allt saman. Svo var ég að láta endurnýja vegabréfið mitt í vikunni og bretarnir neita að stimpla það löglegt og hleypa mér þar með ekki inn í landið. Þeir segja mig vera asíubúa í sauðargæru íslendings og að ég sé þannig með falsað vegabréf !“

Hluti ferðahópsins í fyrra. Avram Grant var fullur alla ferðina og neitaði að fara úr þessari Chelsea peysu.
En nú ert þú kínverskur, ekki satt ?
„Nei það er bara misskilningur. Ég er íslendingur og meira að segja mjög stoltur íslendingur. Þeir hafa bara verið að horfa á kvikmyndina The Terminal og halda að þeir lendi í einhverju þannig með mig, en það gerist aldrei sko, ég myndi aldrei raka mig á flugvelli !“ segir Ebbi og bætir við „Þetta er gríðarlega svekkjandi í ljósi þess að við strákarnir fengum okkur allir London Calling hringitón hjá Nova til þess að gíra upp stemninguna fyrir ferðina. Ég borgaði 98 krónur fyrir þennan hringitón en nú virðist sem að þessir aurar séu farnir til einskis. Ég sendi Nova mail á sunnudaginn en þeir segjast ekkert getað gert. Þetta er hrikalega svekkjandi !“

Hér er Ebbi á hægri hönd pósandi að asískum sið.
Það lítur því miður allt út fyrir það að asísk-íslendingurinn Ebe með Crebe verði á klakanum vikuna 15-22. september. Ebbi segist vera mjög fúll og að þetta séu eingöngu fordómar og að þessar ásakanir bretanna séu ekki á rökum reistar og verður undirritaður að vera hjartanlega sammála honum.
13 dagar í London.
kv. Bogi Ágústsson
„Hverfis er lífið !“ segir Nanna Lára Sigurjónsdóttir, djammdrottning með meiru. „Fólk veit bara ekki hverju það er að missa af áður en það fer þangað inn. Þetta er eins og himnaríki.“ segir hinn heittrúaða Nanna, sem hefur gert sér það að frægðarorði að hafa samið hið margrómaða Bjór Faðir Vor. Hún kveðst finna listamanninn í sér þegar hún sest með Bakkusi og skrifi hún einnig allar ritgerðir og skilaverkefni undir áhrifum hans, en hún gengur í Verzlunarskóla Íslands.
En hvernig gengur að sameina skóla og bæjarlífið ? – „Það gengur ekkert maður. Maður verður bara að velja í lífinu, bjölls eða að vera nölls. Ég vel bjölls.“ segir hin 18 ára Nanna og er greinilega með á nótunum í lífinu. Aðspurð hvernig staðan varð svona þá svarar hún að það hafi aðallega verið hópþrýstingur frá vinum og vandamönnum. „Stelpurnar voru endalaust að tala um djammið og ég var bara fótboltastelpa. En ég sé ekki eftir neinu í dag.“ Þær vinkonuhópurinn kalla sig einmitt Drunk and hot girls eftir laginu sem meistarinn Kanye West söng hér um árið og bera þær nafn með rentu. Oftar en ekki eru þær mættar í Hverfisröðina frægu um hálf 6 leytið, og finnst það ekkert snemma. „Ef maður ætlar eitthvað að gera þetta af viti verður maður að mæta snemma. You snooze you lose !“ segir Nanna Lára og voru þetta hennar lokaorð við undirritaðan.

Hér má sjá þær stöllur á Hverfisgötunni þegar klukkan er að detta í hálf 6. Mættar með teppi og tilbúnar í djammið.
Reynsluboltinn og gamla Hverfis-Brýnið Sindri Rafn Sindrason, annar Verzlunarskólanemi, tók einnig í sama streng. „Það eru nokkrir hlutir sem maður verður að hafa á hreinu ef maður ætlar að vera að þessu á annað borð.“ segir Reynsli Sindra. „Þú verður að vera mættur snemma. Vera í góðum hóp og helst hafa gott nafn á krúinu. Ef þú ert með þessa hluti á hreinu ertu góður kandídat í Hverfis-Legend.“ En þess má til gamans geta að vinahópur Sindra kallar sig Le Hvebb Mafia.
Þegar ég spurði Sindra hverjar væru hans helstu fyrirmyndir í þessum efnum svaraði hann: „Það eru náttúrulega bara þessir helstu gæjar sem hafa meikað það á Hverfisbarnum. T.d. hvar væri Sigmar í Kastljósinu ef að Hverfis hefði ekki verið til staðar. Svo ég tali nú ekki um Hálfdán í Landsins Snjallasta eða Pacas hans Begga !” Ég er nú sammála honum að því leyti að það er mikilvægt að hafa góðar fyrirmyndir, og skemmir ekki að hafa þá fagmenn eins og fyrrnefnda stráka.

Hér er strákurinn hress á því í fermingarveislu bróður síns. Það voru gatanir í boði hússins.
Ætla að hafa þetta nóg af Hverfis-visku í bili. Afsakið þreytt blogg en svona er lífið. En þrátt fyrir erfiði í blogginu gengur lífið nokkuð sweet bara. Fórum að borða strákarnir á Ítalíu á föstudaginn og þaðan heim til Ben og áttum þar góða kvöldstund. Svo bara afmæli hjá Axeli um næstu helgi, stefnir allt í snilld. Jájá.
Lag dagsins er svo mikil snilld að það er bara djók. Það er lagið Guaranteed eftir Eddie Vedder en það er einmitt úr hinni stórgóðu mynd Into The Wild. Skelli því hér með.
Gullkveðjur
Jay Ay Why Ell I Bee
„Ég hef þurft að bera þennan þunga kross allt mitt líf.“ segir Brynjar Benediktsson, formaður félaganna Ísland Fyrir Íslendinga, Nasisminn Lifir og Ungfemínistafélgas Íslands, aðspurður um leik Þýskalands og Spánar í úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í gær.
Eftir leikinn brutust úr óeirðir við Gamla Bókasafnið og var þjóðverjinn Brynjar eltur út í bíl sinn þar sem hann stakk þrjótana af.
„Það er erfitt að vera þýskur, ég hef þurft að líða fyrir það alveg síðan ég flutti heim og er orðinn fullsaddur af Heil Hitler bröndurum og öðru þvíumlíku !“ segir Brynjar afar þungur í bragði. „Þessir menn skilja bara ekki þá ást sem ég hef á föðurlandinu. Svo hafa þeir aldrei heyrt um hugtakið að kunna að vinna.“
Brynjar var stuttur í spuna á meðan viðtali stóð og eins og sjá má á þessari mynd skein biturðin úr augum hans.
Aðspurður um hvert sé næsta skref í baráttunni við rasismann kveðst Brynjar hafa þegar leitað til barnasálfræðingsins Hugó Þórissonar og hafi þegar hitt Björn Inga Hrafnsson í ófá skipti. „Ég og Björn höfum báðir þann djöful að draga að vera báðir eiginhagsmunaseggir sem fengu vini sína upp á kant við sig. Við gerum styrktaræfingar til þess að hjálpa okkur á þessum erfiðu tímum, bæði andlegar og líkamlegar. “
Brynjar vildi ekki tjá sig frekar um málið en Jóna Kristín Hauksdóttir ástkona Brynjars hafði þetta um málið að segja: „Vissulega er þetta helvíti sem hann er að ganga í gegn um, þjóð hans að tapa i á EM og vinir hans nudda þessu í andlitið á honum. Það væri gaman að sjá Jökul grenjandi þegar Ísland kemst t.d. ALDREI á HM, helvítið á honum !“ orgar Jóna og er greinilega mjög heitt í hamsi.
Meira um þetta allt saman er málið þróast. Ég vil senda samúðarkveðjur til Brynjars og hans vandamanna á þessum erfiðu tímum. Þú stendur þig strákur !
Góðar stundir
- Fréttastofa arngfin@verslo.is